Markmið Kærleiksdaga
Fyrirlestrar

-
Auka kærleiksrík samskipti manna í milli.
-
Eiga heilandi og fræðandi samveru í heilbrigðu umhverfi.
-
Kynna og veita margvísleg meðferðarform.
-
Kynnast öðrum meðferðarformum og vinna með sjálfan sig.
Slökun og hugleiðsla
Samtal, heilun og samvera
Heilnæmt umhverfi og hollur matur

- fös., 10. nóv.Hótel Laugar
- fös., 05. maíÚthlíð, 806, Iceland
- fim., 16. mar.Svalbarðsstrandarhreppur
- fös., 11. nóv.Hótel Laugar

Umsjón Kærleiksdaga
Kærleiksdagar hófust á Narfastöðum árið 1997. Þeir voru stofnaðir af 5 manna hóp sem rak andlega miðstöð á Akureyri sem hét Blikið. Vigdís Kristín Steinþórsdóttir var ein af stofnendum og hefur séð um Kærleiksdaga síðan 2001. Auk þess að standa fyrir Kærleiksdögum sér hún um Heimsljós, andlega ráðstefnu sem haldin er ár hvert í Mosfellsbæ.

Vigdís Kristín Steinþórsdóttir
Hjúkrunarfræðingur, heilari og dáleiðari til fyrri lífa
Dáleiðslunámskeið Vigdísar
Eru ætluð þeim er vilja vinna með sig í gegnum dáleiðslu og ef til vill vinna með annað fólk. Farið er í gegnum æfinga dáleiðslur í hóp og svo er unnið með hvert annað.
Aðstoð við börn
Vigdís hjálpar börnum með ýmiss vandamál t.d. : ótta, myrkfælni, svefnvandamál og skapbresti. Hún vinnur með litameðferð, heilun, fyrri líf og slökun, en það er einstaklingsbundið hvað er tekið fyrir hverju sinni.
Heimsljós
Heimsljós messan er haldin ár hvert í september í Mosfellsbæ. Þemað er kynning á leiðum til betri heilsu andlega sem líkamlega. Þar eru í boði fyrirlestrar, kynningarborð, hugleiðslur og prufutímar í heildrænum meðferðum.
Kærleiksrík
samskipti
Samkennd, umhyggja og friður í hjarta
Í hraða nútímans getur það verið gefandi að staldra við, hitta sjálfan sig og vinna í mildi með eigið líf. Við stillum saman kærleiksstrengi og finnum fræðslu og meðferð við hæfi á Kærleiksdögum.
Myndir frá viðbuðum má skoða hér í myndagallerýi




Núvitund, hugleiðsla, slökun og dáleiðsla
Bætir svefn
Góður svefn er grundvöllur góðrar heilsu, bæði andlegrar og líkamlegrar.
Minnkar kvíða
& þunglyndi
Styrkir jákvæðar hugsanir, eykur meðvitund og dregur úr niðurrifi og depurð.
Léttir á streitu
Dregur úr framleiðslu streituhormóna og bæta þannig líðan, einbeitingu og sjálfsstjórn.
Eykur einbeitingu og hugarró
Ástundu styrkir heilastarfsemina og bætir athygli, samkennd, og sjálfsvitund.

Samvera, slökun og andleg vinna í íslenskri náttúru í yfir 26 ár
Kærleiksdagar
Fáðu fréttir og tilkynningar
Skráðu þig á póstlistann og fáðu upplýsingar um komandi viðburði og dagskrá Kærleiksdaga